Vélsmiðjan foss ehf

Hlutir í andveltitank til Ástralíu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fyrsta_skref_til_straluLokur_og_dlust_pakka                               Fyrsta skref til Ástralíu

  Lokum og dælustöð pakkað                                                                                                             

Í lok júlí sendi Vélsm. Foss ehf lokur o.fl. áleiðis til Ástralíu. Þessir hlutir fara í andveltitank sem settur verður um borð í ástralskt fiskiskip. Tankurinn og búnaður í hann er hannaður af okkur og samstarfsaðilum okkar; Stefáni Guðsteinssyni skipatæknifræðingi hjá Envo og Þorvaldi Sigurjónssyni rafmagnsverkfræðingi hjá Verkís.

 

Vökvakerfi - slöngutromla

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Tilbin_til_veia                             Stjrnbor__br            Tromlan komin um borð                                                                            Stjórnborð í brú
Ms Jóna Eðvalds SF hélt til veiða á makríl og síld í lok maí með nýtt vökvakerfi fyrir fiskidælu og nýja slöngutromlu. Starfsmenn Vélsm. Foss ehf hönnuðu og smíðuð hvort tveggja og settu niður í skipið. Við hönnun á umræddum búnaði var m.a. lögð áhersla á góða orkunýtingu og sem besta meðferð á afla við dælinu um borð.  Í þessu skini var valið að nota stillanlegar stimpildælur í vökvakerfið og flæði- og þrýstistýra þeim úr brú skipsins. Slöngutromlan er byggð fyrir 2" háþrýstislöngur og eina 1/2" slöngu fyrir blæðingu frá dælumótor. Reynsla skipverja af tveggja-mánaða notkun á búnaðinum er góð og virðist hann vinna eins og til var ætlast.
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Þú ert hér: Forsíða